25júní
margt er búið að gerast síðustu daga.. hvort það sé búið að vera skemmtilegt eða leiðinlegt.. allavega.. MARGT er búið að vera að gerast... eina sem ég segi bara :F
en ég er búin að ákveða að hætta með þessa síðu.. hver veit nema ég byrji með hana aftur um jolin :Þ ég er búin að vera að vinna og vinna og þegar ég kem heim rétt hendi ég mér inní sturtuna og sturt mig skvetti framan í mig smá málingu og skíst út í ævintýrin mín :Þ hehe ;D
en fólkið er hvort sem er hætt að skoða hana.. þannig að þetta er ekki mikill missir :Þ ég bara nenni aldrei að blogga, gleymi alltaf að ég eigi þessa síðu til :Þ og svo hef ég eiginlega ekki tíma bara :))
svo að ég er bara out.. farin að vinna í annað skiptið í dag..
02júní
hvað heldiði að ég nenni að blogga! :/
en ég er búin í prófunum núna.. ég tók þetta blessaða endurtektarpróf í morgun en ef ég segi eins og er held ég að ég hafi fallið á því :/ en ég vona samt sem áður að ég hafi fengið hærra en 2 :D annars fell ég á árinu :/ var bara að frétta það rétt áðan.. ekki gott mál, ó nei :D
núna er vinnan bara byrjuð á fullu! reyndar er hún búin að vera á fullu um tíma en núna er þetta leiðindapróf ekki að vefjast fyrir mér lengur :) já, ég var bara að komast að því í gær að mamma og pabbi breyttu nafninu á fyrirtækinu fyrir 5 árum! það hét alltaf Grasavinafélagið ehf en það er víst búið að heita Gunnarshómi Grasavinafélag ehf í 5 ár! :D jáááá... ég er líka bara að fatta núna þegar ég er að skrifa þetta afhverju það stendur Gunnarshólmi Grasavinafélag á bínum hjá pabba.. :) ég spáði mikið í því hvaða fáviti skrifaði þetta á bílinn ;) hehe :P
svo er Gumbó að fara á Hróaskeldu í tvær vikur að sötra bjór allan liðlangan daginn á meðan ég fæ að tína torf allan liðlangan daginn :/ :D en ég er að fara með Sigurbjörgu, Auði og Hrannari og einhverjum norður 17 júní og verðum í 5 daga eða e-ð :D hlakka mega til að gera loksins e-ð að viti með fólkinu ;)
jámm.. ég er farin út að vinna..
ég er out fallega fólk! ;)
þessi er nú soldið grasalegur.. eða hvað?
..nei.. ég held ekki.. en hann er bóndalegur!
08maí
Hæhæ Krakkalakkar :D en ég hef víst voðalítið að segja :/
Í kvöld fór á ég pókerkvöld sem endaði með því að við spiluðum olsen olsen uppá money ;) ég var eina stelpan sem mætti! :/ allar hinar beiluðu :/ lélegt.. vona bara að þetta verði ekki svona næst :) Halli var svo vænn að sækja pókerpeningana fyrir mig heim til vinar síns sem var til einkis :/ en só mér er sama ;D ..þótt við notuðum þá ekki meina ég ;) auðvitað var mér ekki sama þótt hann hafi farið spes ferð fyrir mig :))
En já, prófin eru á fullu en ég er reyndar búin að vera í góða viku í fríi frá þeim ;) en þar sem flestir í bekknum mínum þurfa bara að taka 6 próf þá þarf ég að taka 7 :/ endurtektarpróf í líffræði ;)
En hey, ég biðst forláts.. ég hef verið að kalla sum ykkar börn skriflega á ensku heheh ;D en ætlað að kalla ykkur beibí ;) as babe 8) ég komst að þessu ekki fyrir löngu að maður skrifar víst babe ekki baby :D hehe :Þ var einmitt búin að spá mikið í því hvað fólk væro skrítið að kalla vini sína babe en væri krúttarlegt samt sem áður :Þ en afhverju þá ekki bara bebe eins og kindin? :)
En já, þetta er ekki í fyrsta skiptið og verður ekki það seinasta þar sem ég ruglast á svona hlutum :D but hey, thats just me ;)
Haha en það var geggjað fyndið sem Sibba sagði áðan.. ég var e-ð að nudda hana því hún er með svo mikla vöðvabólgu greyið :/ og svo kom hún með þessa hræðilegu perrarödd og sagði:
,,Drekktu nú kakóið þitt vinur, ég skal nudda þig á meðan”

22apríl
Hæ krakkar ;) :Þ það eru ALLIR krakkar hjá mér ;) meira segja fólk sem er að deyja úr elli ;)
Í gær komu Sibba, Hrannar og Ari heim til okkar Auðar :)þar vorum við bara e-ð að chilla og hafa gaman svo komu Magga og Inga Ásta heim en þær fóru snökkt aftur þegar Josh var búinn að gera sig tilbúnann á djammið ;) svo fórum við og misstum okkur í Sing Star :Þ glæsileikur hér á ferð.. sem ég mun aðeins taka þátt í ef ég er full ;D svo einfalt er það :D það var snilld að horfa á Hrannar og Ara í þessu haha :D fóru og rendu sér á gólfinu og e-ð þvílíkt þegar þeir voru að syngja haha :D
Svo kom Halli heim með vini sína sem voru öll jafn blindfull og vangefin;) sumir voru að missa sig í gleðinni;) :) Halli var að missa sig algjörlega :Þ ;) svo komst maður að því að við Auður ættum frænda sem heitir Óli sem Halli var að draga með sér heim að sníkja mat ;) hehe ekki alveg kannski :DSvo var bara vaknað í hádeginu.. Sibba og Hrannar eru ennþá sofandi!! Sigurbjörg segðu síðan að þú vaknir alltaf á undan mér ;) þetta var líka seinast :D:D:Þ hehe ;) já ég hélt að ég ætti að fara að vinna en svo var hætt við það þannig að ég er bara e-ð chilla hérna í tölvunni meðan Auður glápir á kassann og hin sofa ;) þetta var soldið spes kvöld e-ð.. en ég er svo heppin að vera ekki þunn ;) ekki alvarlega allaveg :D:D
Ohh síðan eru prófin að byrja :/ ég þoli ekki þann tíma! Núna þarf maður að fara að læra :/gera sig aðeins meira gáfaðann ;) ehehehehehehe....
Æ ég veit ekki hvað ég á að segja meira :/ en bömmer að eiga ekki mynd af Hranna og Ara í Sing Star haha :D
over and out..

vá hvað hann er algjört rassgat!
(p.s.
það er langt síðan ég skrifaði þetta.. ég gleymdi að setja það á síðuna bara ;) hehe :Þ ég fór fram til að hitta Sibbu og Hranna :D ef það myndi vilja svo til að Sibba myndi taka eftir tímasetningunni);)
19apríl
Hahahaha þetta var svo fyndið sem gerðist í skólanum í dag! :D haha :Þ Þetta var reyndar eiginlega svona “have to be there” moment ;) en í hádegishlénu ætluðum við Helena að fara og bíða inni í stofu og við sáum að allar stelpurnar voru bara að bíða fyrir framan stofuna því hún var læst :/ ég og Helena fórum aftur út og þá tók ég eftir þvi að einn glugginn var opinn á stofunni.. :Þ hehe svo ég sagði Helenu að fara inn ef ég myndi gefa henni fótastíg ;) og við fórum út og gerðum þetta, ætluðum að hætta við því við vorum ekki alveg að koma henni upp en svo voru einhverjir gaurar að kvetja okkur áfram og bara e-ð að fokkast í okkur.. mega fyndið ;) :Þ Helena meiddi sig í hausnum og læti ;) þannig að við ákváðum að halda áfram :D áður en við vissum af var næstum allur bekkurinn sem var þarna uppi byrjaður að stara á okkur svo við ákváðum bara að hafa hraðann á :D Helena ákvað það einmitt að fljúga inn þegar hún heyrði gaurana vera að tala um hvað rassinn á henni væri djöfulli flottur ;) Helena sko, ég er búin að segja þér það og fleiri.. þú ert með fallegan rass :) hehe ;D eftir þetta fékk maður bara jee putta ;) sem er náttúrulega bara besta mál ;)
ég fékk ekki neitt páskaegg.. en mér er sama :) því ég borða ekki súkkulaðið og eiginlega ekkert nammi sem er inni í þeim :D svo lokaútkomman er.. ég borða ekki páska egg :) ekki Sibba Hetja heldur ;)
Ég, Auður, Helena og Sigurbjörg.. ákváðum að fara á kaffihús saman í gærkvöldi.. það var geggjað næs :) vorum í 3 tíma ef ekki lengur þar og ég fékk franska súkkulaði köku! Mmm.. ég elska hana ;) fórum á café Sólon.. allar Svöngu Hetjurnar komnar saman að spisa ;D
Ég, Sibba og Helena skruppum einnig í sund í gærdag í fína veðrið og skelltum smá brúnku á okkur í lauginni ;) geggjuð sól en mikið af börnum :/
Ég og Auður erum að fara í fyrsta ökutímann okkar á föstudaginn :Þ svo við erum búnar að vera að æfa okkur að keyra fyrir hann ;) bara á planinu samt.. það er svo rooooosa stórt :)
En já, ég er að pæla í því að fara að gera e-ð annað núna :)
Blebb honís ;D

aha.. Hetjurnar þegar þær fá skyndilega hugmynd..
16apríl
Hæ hó ;D
Ég var eiginlega bara að koma inn úr dyrunum núna heim frá Hrannari og Sigurbjörgu. Margrét afmælisbarn var svo FRÁBÆR ;) að koma og sækja mig :D
Já, í gær kom Sibba Hetja heim til mín og við byrjuðum að drekka bara e-ð nett.. mamma bjó til handa okkur eins og ég kallaði það óvart við Sigurbjörgu.. “sex on the bitch” ;) hehe ;D en mamma er snilli að búa þetta til og fóðraði mig, barnið sitt og hitt “barnið sitt”, Sigurbjörgu ;) við drukkum og drukkum og svo kom Hrannar með frænda sínum heim til mín og við vorum bara e-ð að chilla. Hehe ég og Sigurbjörg fórum í 80’s kjólana sem eru inní skápnum mínum og tókum þannig á móti strákunum :D bara fyndið :Þ
Frændi Hranna skutlaði okkur heim til Sibbu og þar gistum við, ég, Sibba og Hrannar. Ég “vann” Sigurbjörgu því að hún sagði að hún ætti pottþétt eftir að vakna á undan mér en ég vaknaði á undan og þá er sko mikið sagt! :D hehe ég er ekki löt á morgnanna :Þ ;) fengum okkur að borða og pabbi Hrannars skutlaði okkur í sund. :) næs kall hér á ferð ;D hittum vinkonu hennar Sigurbjargar, Sandra að nafni.. hún byr fyrir norðan stúlkukindin :)
Hranni sótti okkur úr sundi og skutlaði okkur heim til hans. Þar vorum við að horfa á e-ð í tölvunni :) og Hranni að gera við bílinn :) við sofnuðum hehe :Þ og svo sótti Magga mig bara ;D set kannski myndirnar af þessu rugli okkar inn á síðuna seinna ;) ...ef ég neinni! :D
Til hamingju með afmælið ;D ég veit að ég er sein, en seint er betra en aldrei :D eins og gömul pökk myndu segja með “stæl” ;) en ég reikna ekki með því að skvísan sjái þetta ;D´
en ég er farin! bæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæ.. ég er ekki í mjög góðu skapi akkurat núna :/

Sæta skvísan til vinstri, dökkhærða ;) Margrét skvís ;D til hamingju elskan ;) :*
13apríl
ja hérna hér :D
ég hef EKKERT að blogga um :D
ég reyndi að nudda Sibbu uppúr því að ég hafi verið að borða aspasstikki en hún svaraði mér bara ekki ;) fyrir þá sem ekki vita að þá elskum við Sigurbjörg aspasstikki og ís! ;D
Helena og Sibba komu í heimsókn í gær og við horfðum á einhverja crap mynd :/ ekki skemmtileg.. en Helena skemmti sér konunglega, en ekki hvað ;)
ég er geggjað ánægð því að ég er loksins búin að fá gjafabréfið frá 10 11, það var alltaf geggjað vesen því að við vorum að vinna í skeljungi, select og það fyrirtæki hætti að vera sama og 10 11 :D en margt getur maður nú fengið með frekjunni ;) múahha..
já, Helena gisti hérna og vakti mig í morgun á jafn "skemmtilegan" hátt og venjulega ;) hún fór að feika einhvern aula hlátur! ;D haha soldil snilld en ég var sibbin því ég svaf nær ekkert :/ en henni er náttúrulega alltaf sama :D hún hefur enga sammúð með fólki ;D
ég og Helena fórum á grímuball um daginn í skólanum hennar Unu.. hér eru nokkrar myndir að lokum ;)
ég var kjúklingur ;)

Una, vinkona hennar Helenu var engill ;) sætar stelpur hér á ferð ;)

og Helena skvís prinsessa ;D
en kjúlli kveður að sinni..
BLEBB! ;D
12apríl
ég er alveg hreynt brjál! ég var að gera e-ð dæmi og var svo lengi að því og gat ekki gert copy paste eða það þannig að það eyddist allt!!
:(
11apríl
Helena var að svara þessu dæmi svo að ég varð bara að gera það líka ;)
Hefuru?
(X) Drukkið áfengi
(X) klesst bíl vinar/vinkonu (það var ekki hjá vinkonu minni og ekki bill heldur keyrandi slátturvél ;D ég og auður klestum á hvor aðra ;) )
( ) stolið bíl
( ) verið ástfanginn
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
(X) faðmað einhvern ókunnugann
( ) verið rekin/n
(X) lent í slagsmálum (haha já, oft þegar ég var lítil :Þ )
(X) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(X) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
(X) farið á blint stefnumót (sé soooldið eftir því ;) )
(X) logið að vini/vinkonu
(X) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(X) ferðast í flugvél
(X ) kveikt í þér viljandi (átti það til að kveikja pínu í hárinu á mér á yngri árum) ;)
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(X) farið á skíði
(X) farið á tónleika
(X) tekið verkjalyf
(X) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna (saknar maður ekki alltaf einhvers?) :)
(X) legið á bakinu úti og horft á skýin
(X) búið til snjóengil
(X) haldið kaffiboð
(X) flogið flugdreka
(X) byggt sandkastala
(X) hoppað í pollum
(X) farið í "tískuleik"
(X) hoppað í laufblaðahrúgu (hef leikið mér í henni og lenti í klandri haha Helena líka)
(X) rennt þér á sleða
( ) grátið svo mikið að þér finnst þú aldrei ætla að hætta
(X) svindlað í leik.. (já þegar ég var lítil eins og allir gerðu bara)
(X) verið einmana
(X) sofnað í vinnunni/skólanum
(X) notað falsað skilríki
(X) horft á sólarlagið
(X) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
(X) verið kitluð/kitlaður
(X) verið rænd/rændur
(X) verið misskilin/n (Haha það er daglegur hlutur)
(X) klappað hreindýri/geit/kengúru
( ) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(X) lent í bílslysi (bara e-ð oggu samt)
( ) verið með spangir/góm
(X) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(X) borðað líter af ís á einu kvöldi (folk sem þekkir mig veit hvað ég DÝRKA ís) ;)
(X) fengið deja vu
(X) dansað í tunglskininu
(X) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp
(X) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum
(X) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(X) verið týnd/ur
(X) synt í sjónum
(X) fundist þú vera að deyja
(X) grátið þig í svefn
(X) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(X) sungið í karaókí
(X) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (að stórum hluta minnir mig bara)
(X) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(X) hringt símahrekk
(X) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér (ekki út!)
(X) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(X) dansað í rigningunni
(X) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini (heh hvað er aftur mistilteinn? Er það heitur stein til að hella vatni á svo það verði gufa og heitt)?
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(X) blásið sápukúlur
(X) kveikt bál á ströndinni
(X) komið óboðin/n í partý..
( ) verið beðinn um að yfirgefa partýið
(X) farið á rúlluskauta/línuskauta
(X) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk (en era ð deyja! Mig langar svo.. vill enginn fara með mér) :/
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(X) gert eitthvað sem þú hefur séð eftir (það er enginn fullkominn, svo, auðvitað)
so there you have it ;) en ég er að pæla í því að fara að sofa :)
góða nótt góðir hálsar.. var svo sem þið eruð...
Heimska Hetjan sem missti útúr sér að hún vildi fiskinn sinn hráann! er farin ;)
08apríl
hæhæhæhæhæhæ.... ;D ég er í svo góðu skapi e-ð núna :Þ en var það því miður ekki í dag :/ sorry Helena mín :/ ætlaði ekki að vera í fílu :)
en já, komin í páskafrí og mér gæti ekki liðið betur! :D ooog hætt að vinna í select ;) hætti reyndar 1. aprí, kannski hélt kallinn að við værum að djóka því að það er búið að vera að reyna fá okkur til að mæta til vinnu :/ nei, ég held ekki ;) en töff dagsetning ;D hehe :Þ
já, í rauninni fór ég samt í páskafrí í gær því það féllu allir tímar niður í dag í menntaskólanum við sund.. MS er minn skóli ;) þannig að ég fór heim til Helenu eftir að hafa mætt samt sem áður! :/ það var ekki gaman.. ég var þreytt :( en nóg um það :D og króknaði ég náttúrulega úr kulda því að ég fæ bara bílprófið í ágúst og Helena í júlí. fórum heim til hennar og horfðum á mynd sem að var góð en virkaði stutt því það gerðist ekkert í myndinni! alltí einu var hún bara hætt! :O en þá TRÓÐ Helena mér í allt hræðilega sem hún atti til heima hjá sér svo ég myndi ekki frjósa þar sem við vorum að fara í kringluna með Sibbu, endaði með því að ég fór í
RAUÐUM jakka sem að enginn hefur náttúrulega séð mig fara í og mér leið eins og hálfvita.. Helena stanslaust hlæjandi og þá fór ég í fíluna ;)
ég hata páskaegg en elska páskana..! elskið þið eggin? :/

þessi kauði er væntanlega æstur í þau..